Aðalvalmynd

Atburðarteljari

Auglýsing

komin á klakann!!!Aðalbjörg Halldórsdóttir

Jábbs....er komin á klakann ;) Rosa skrítið að vera komin heim...maður var farin að venjast svo lífinu á Spáni að það er rosa skrítið að vera svo heima :S En alveg æðislegt að hitta alla vinina og fjölskylduna :D Draumur í dós ;)

En ég er loksins búin að seta allar myndirnar mínar frá þessari geggjuðu lífsreynslu á netið :D  Endilega kíkið:

picasaweb.google.com/addaandgreta
picasaweb.google.com/addaandgreta2

Elska ykkur öll;*
besos,
Adda xox

Un Semana muy muy muy fuerte!!!!!!!!!Aðalbjörg Halldórsdóttir

3 semanas más y yo vuelvo a Islandia :D hehe ;)

 

Mánudagurinn var rosa skemmtilegur ;) En þannig að þið vitið það þá var Semana Santa hátíðin þessa vikuna :D Rosaleg páskahátíð.....í alvöru...þá er ég að tala um þvílíkt brjálæðislega hátíð ;) En svo ég haldi nú áfram....við fórum galvaskar í skólann um morguninn en eftir skóla var bara aðeins skellt sér á netið ;) Um fimm leytið fórum við í svona skoðunarferð með skólanum þar sem við fórum að horfa á eina skrúðgöngu :D En á Semana Santa eru skrúðgöngur á hverjum degi fyrir hverja og eina kirkju í Sevilla :D Þetta er rosalega flott :D Ég set inn myndir bráðlega af skrúðgöngunni :D En um sjö leytið ákváðum ég og Gréta að yfirgefa svæðið ;) Við fórum heim,  skelltum okkur í sturtu og gerðum okkur til fyrir kvöldið ;) Síðan lögðum við af stað á Plaza Nueva til að hitta Tarka, Adam, Rob, Elise, Erik, Maggie, Erin og Jill (sem er ný stelpa í bekknum mínum....rosalega fín stelpa) ;) En ekki hvað...auðvitað þurftum við að lenda í miðri skrúðgöngu og þurftum  því að fara stóóóóran krók til að komast á Plaza Nueva....það er alltaf svo brjálæðislega mikið af fólki allstaðar þegar það er Semana Santa vikan :S:S En það tók okkur 45 mínútur að komast á Plaza Nueva þegar það tekur okkur oftast 15 mín.....alveg svakalegt...hehe....en maður komst á endanum ;) Við fórum síðan öll á írskan pub ;) Við vorum flest í grænum fötum af því að það var “Saint Patriks day” ;) En við fengum okkur öll að borða og síðan drukkum við og spjölluðum...rosalega gaman :D:D  Síðan fórum ég og Gréta með Rob og Elise á vistina þeirra...aðeins til að spjalla og soleiðis en síðan fórum ég og Gréta bara heim að lúlla ;)

 

Þriðjudagurinn var einnig mjög fínn :D En við auðvitað skelltum okkur fyrst í skólann og síðan var bara aðeins farið á netið ;) Síðan fórum við bara heim;) Gréta litla var svo þreytt að hún tók sér stóóóra síestu...hehehe....en ég nennti ekki að fara að sofa þannig að ég var bara að hanga í tölvunni því við fengum loksins netið :D En bara þennan eina dag :S:S Betra en ekki neitt samt ;) Síðan skellti ég mér bara í sturtu og fór svo niður um sjö leytið og byrjaði að elda pasta ;) Síðan mætti Tarka allt í einu þannig að ég eldaði handa okkur báðum ;) Pastað var rosa gott þó ég segi sjálf frá....hehehe ;) Á meðan við borðuðum horfðum við á Mulan..híhí ;) Alltaf skemmtilegt að horfa á Disney..hehe :D:D Um hálf níu leytið komu Rob, Elise, John, Maggie og Anton ;) Við horfðum á Meet the Robinsons.....ég bara svei mér þá held að ég hafi næstum dáið úr hlátri...þessi mynd er svo rosalega kjánalega fyndin að maður bara deyr úr hlátri..hehehehehe....en jámm...það var þvílíkt kósý :D:D Eftir myndina fórum við öll saman á veitingastað og fengum okkur pizzur og pasta....ég fékk mér ógeðslega góða grænmetispizzu....held bara svei mér þá að þetta hafi verið besta grænmetispizza sem ég fengið...hehe ;) En eftir það fórum við öll á Intercambio kvöld á Bar Corral ;) Við vorum þar til um eitt leytið að spjalla og drekka :D rosa gaman :D:D Síðan fóru allir að týnast heim, en Rob og Elise komu með mér og Grétu aftur upp á vist og þau voru hjá okkur til um hálf þrjú og síðan var bara farið að lúlla :D:D

 

Miðvikudagurinn var nettur :D:D:D En eins og vanalega var skellt sér í skúlen í jollie fíling ;) Síðan var bara farið í Corté Inglés í rigningunni og keypt matvörur fyrir helgina ;) Síðan var bara farið heim, fengið sér smá að borða, ógó gott pasta sem ég gerði...hehe ;) En svo var tekið smá síestu því maður þurfti nú að vera vel vakandi fyrir kvöldið ;) En um sjö leytið vöknuðum við, fórum  í sturtu og gerðum okkur til :D Jack og Martin höfðu gert svona lounge uppi á háfalofti....settu dýnur og stóla út um allt svo maður gat setið, drukkið og spjallað :D En um níu leytið fór fólk að týnast á vistina okkar :D En þeir sem voru viðstaddir í litla partýinu okkar á litla kósý loftinu voru: Rob, Bobbie, Bell, Kascha, Jack, Yet, Martin, John, Tarka, Adam, Maggie, Jill, Anton, Ly og svo auðvitað ég og Gréta...hehe ;) En þetta var rosalega gaman, bara að drekka og spjalla með tónlist....svaka kósý og stuð :D:D:D En um eitt leytið kvaddi ég Rob, sem var að fara heim ;(;(;( Það var rosa erfitt og var næstum farin að gráta pínu en hann lofaði að heimsækja mig til Íslands og ég hann til Englands...hehe ;) Síðan um tvö leytið fórum ég, Gréta, Maggie, John, Jill, Anton og Tarka á Buda del Mar að dansa :D:D:D váááá..það var svo roooosalega gaman :D:D:D En Maggie greyið leið ekki vel þannig að hún fór snemma heim :S:S:S En við hin dönsuðum þangað til klukkan hálf sex:D:D:D geeeeeeðveikt stuð :D:D:D hehe....maður var samt ekkert kominn heim fyrr en korter yfir sex....svo fengum ég og Gréta okkur að borða þannig að við fórum  ekki að sofa fyrr en sjö...hehe ;)

 

Við vöknuðum um hálf þrjú leytið á fimmtudaginn ;) Síðan eldaði ég beikon og egg :D:D Rosa gott ef ég segi sjálf frá...híhí ;) Ég, Gréta og Bell horfðum síðan á Monsters, Inc. ....snilldar mynd :D:D:D Síðan bættist Martin við hópinn og við horfðum á Pocahontas :D Ég elska Pocahontas...ógó falleg mynd :D:D En síðan var kvöldverður með öllu hollenska fólkinu ég, Gréta, Jack og Anton...hehe ;) Af því þetta var seinasta kvöld Yet ;(;( Eftir matinn var svo bara drukkið og spjallað og síðan var skellt sér á Catedral.....vááááá....var það snilld eða hvað!!!!!! Hehe...jámm....við fengum skomm held ég þrjú frí skot og þrjá fría drykki af því að einn barþjónninn var skotinn í Jill...hehehe ;) Mjög fyndið!!! En jámm...við dönsuðum af okkur rassgatið en um hálf fimm ákvaðum við að koma okkur heim að lúlla ;) Nema það að ég og Gréta lentum í fimm skrúðgöngum á leiðinni heim!!!!! Vá var það pirrandi!!! Maður var orðinn nett pirraður á þessu Semana Santa dæmi :S:S Allt of mikið af fólki allstaðar og það var bara pirrandi en við vorum loksins komnar heim um sex leytið...hehe....þannig að það tók okkur sirka einn og hálfan tíma að komast heim þegar það tekur oftast 15 mín..hehe ;) En síðan var bara fengið sér aðeins að borða og svo farið að lúlla :D:D

 

En á föstudaginn vöknuðum við um tvö leytið til að kveðja Yet ;( Það var svoooo erfitt :S Hún grét og ég næstum farin að gráta....úff...mjög erfitt skal ég segja ykkur.....ég á eftir að sakna hennar rosalega :S:S:S Nú er farið að stimplast inn í hausinn á manni að þetta fer bráðum að ljúka hjá manni því allir eru byrjaðir að fara heim ;(;(;( En maður á pottþétt eftir að sjá einhverja af þessum krökkum aftur ;) En restin af deginum var rosa rólegur ;) Ég og Gréta elduðum okkur ógó gott pasta :D og síðan horfðum ég, Gréta, John, Tarka, Adam, Jack og Anton á Anastasiu og síðan horfðum ég, Tarka og Adam á Monsters, Inc.....ég bara fæ ekki nóg af þessari mynd!!! Hehehe ;) Síðan skelltum við okkur öll og fengum okkur að borða á rosa góðum kebab stað :D Very nice ;) Og svo var skellt sér heim og gert sig til fyrir kvöldið :D Ég, Gréta, Anton, John, Tarka, Adam, Maggie, Jill og Hörður, sem var nýkominn heim frá Malaga, skelltum okkur öll á Buda Del Mar....váááá...það var svo æðislega gaman :D:D:D Skemmtum okkur konunglega til sirka 6 en þá fórum við hjem að lúlla ;) Þó svo samt sem áður fórum við ekki alveg strax að sofa þegar við komum heim....klukkan var sirka hálf átta þegar við fórum loksins að sofa...hehe ;) En ógó skemmtó kvöld :D

 

Við vöknuðum um þrjú leytið á laugardaginn ;) Og þá fór ég að elda egg og beikon...besti þynnku matur sem til er...hehe ;) Við ákváðum að gefa Tarka með okkur af því hann var að fara á sunnudaginn...híhí....ógó góðar ;) En síðan gláptum ég, Gréta, Tarka og Hörður á Pochontas....þó Hörður horfði nú ekki mikið því hann sofnaði í miðri mynd!!! Hehe ;) Síðan skelltum við Gréta okkur að versla inn og síðan var gert sig til fyrir kvöldið því þetta var náttla seinasta kvöld Tarka með okkur ;(;(;( Anyways...hehe...Ég, Tarka, Gréta, Adam, Elise og Erik skelltum okkur síðan á Buddah þar sem við hittum Anton og John og helling af hollensku fólki...hehehe ;) váááááá...það var svo roooosega gaman að það er ekki einu sinni hægt að lýsa því...hehe ;) En við vorum á Buddah þangað til klukkan 6:30 og löbbuðum svo hægt heim....hehehe....en ég, Tarka og Gréta komum heim eikkað um 7 og síðan var bara farið að lúlla!!!!!!!!.....þeir sem vilja slúðrið af þessu kvöldi endilega hringið....hehehehe ;)

 

En sunnudagurinn var rólegur ;) en þegar ég vaknaði fór ég inn í eldhús að laga aðeins til ;) En síðan kom Tarka og spurði hvort ég vildi fara með honum að ánni.....ég fór og þar hittum við svo Maggie ;) Við sátum þar í skínandi sól í um það bil 2 tíma en þá þurfti Tarka að koma sér heim af því hann var að fara klukkan 7 ;(;( Ég ákvað nú að fara með honum af því ég vissi að ég myndi villast ef ég reyndi að koma mér heim ein...hehehe ;) En þegar við komum heim var nú ekki gert mikið....ég stóð bara á þakinu í sólinni í um klukkutíma og svo kom Tarka til mín og kvaddi mig......það var svoooo erfitt, ég fékk pínu tár í augun en ég fór samt ekki alveg að gráta af því hann er náttla að koma aftur eftir tvær vikur :D:D:D hehe ;) Um kvöldið bjó Gréta til æðislegar beikon og osta samlokur.....vááááá...heaven!!!! hehe.....en svo seinna um kvöldið fór ég með Elise á staðinn þar sem við fengum cheese from heaven seinast! Gréta var svo löt að hún kom ekki með...hehe....En það var rosa gott á staðnum, spjölluðum um allt slúðrið frá kvöldinu áður, en síðan kvöddumst við og ég fór til hennar Grétu minnar og við fórum að lúlla :D

 

Hef nú ekki meira að segja í bili ;)

Verið góð ;)

Þangað til í næsta bloggi ;)

Hasta luego ;*

-Adda ;*

Helllúúú;)Aðalbjörg Halldórsdóttir

Jámm og jæja...ég trú ekki að það sé mánuður þangað til ég kem heim...vááá....allt of fljótt þangað til :S:S:S:S hehe ;)

 

En svo að maður byrji nú á byrjuninni ;)

Mánudagurinn var bara soldið skemmtó ;) hehe...ekkert samt djamm en samt mjög skemmtilegur :D En til að byrja með skelltum  ég og Gréta okkur galvaskar í skólann ;) Hann var eins og vanalega og síðan var skellt sér aðeins í tölvurnar, downloadað nokkrum disney myndum en þegar ég ætlaði að blogga þá mundi ég ekki passwordið á síðuna og íslenski síminn minn var upp á vist þannig að ég gat ekkert bloggað þennan dag....pirrí:S:S:SS hehe....en síðan var bara farið heim ;) Við fengum okkur egg og brauð að borða og horfðum á Bugs life..híhí...snilldar mynd ;) Síðan komu Hörður, Anton og John ;) Þeir fóru að spila póker með Martin, Jack og Michael sem höfðu komið aðeins áður;) Við horfðum aðeins á þá, sem var mjög gaman, en svo komu Elise og Rob :D:D:D og við fjögur fórum að horfa á Disturbia....hehe..fæ ekki nóg af þessari mynd ;);) hehe...en jámm, það var mjög fínt ;) Eftir myndina komu allir strákarnir inn til okkar og við fórum öll að spjalla og síðan einhvernvegin breyttist allt í allsherjar nudd partý...hehe...allir að nudda alla...hehe...Gréta nuddaði Anton, ég nuddaði Martin, Elise nuddaði John...hehehe...allir að nudda alla ;);) En síðan fóru bara allir hjem og ég og Gréta að lúlla, þreyttar eftir  mjög skemmtilegt kvöld ;)

 

Þriðjudagurinn byrjaði nú ekki vel :S:S En ég vaknaði með svo mikinn hausverk að ég fór ekki í skólann :S:S En ég held að þetta hafi bara verið mikill þreytu hausverkur og hausverkur af því ég var með smá hálsbólgu af því ég fékk með eitt stykki 600 mg íbúfen og náði loksins að sofna og allt var í lagi þegar ég vaknaði ;) Eftir skóla kom síðan Gréta til mín og eldaði hakk fyrir mig..hehe...hún gerir allt fyrir mann þessi elska..híhí ;) Við fengum okkur síðan tortillas :D Síðan fórum við upp í herbergi að letast, horfðum á Coyote Ugly....snilldar mynd...fæ ekki nóg af henni..hehe ;) En eftir það var bara farið að lúlla ;)

 

Miðvikudagurinn var nettur ;) En eftir skóla var bara farið aðeins kíkt á e-mailið sitt og síðan skelltum ég og Gréta okkur að versla :D:D:D hehe...það var geggjað stuð :D Ég keypti mér peysu og rosa flottan kjól :D:D ógeðslega mikið af hlýrabolum og tvenna kjóla ;) híhí..alltaf gaman að versla ;) Síðan var bara farið heim og tekið klukkutíma siestu ;) mjög gott ;) Svo var gert sig til fyrir kvöldið, enda djamm framundan :D:D Allir komu á vistina og haft gaman en síðan um eitt leytið fóru Gréta og Elise á Antique og ég með Maggie, Tarka og Antoni á Boss af því það var smá vesen út af Maggie en það var í gúddí :D Það var svooooo gaman á Boss...geggjað stuð :D Það fyndnasta var að í seinustu viku hafði þessi gaur komið til mín á Antique og kynnt sig og talað eikkað við mig og síðan allt í einu kom hann upp að mér á Boss var þvílíkt að spyrja mig hvort að ég mundi eftir honum og eikkað..hehehe...og síðan hafði einker fáránlegur gaur komið að tala við Grétu á Cádiz og kom svo aftur upp að henni á Boss og reyndist vera DJ-inn...hehe ;) small city...hehe...á svona stundum áttar maður sig á sig að maður er búin að vera soldið lengi hérna...hehe...eins og maður sé búinn að fara hringinn og er að byrja aftur...hehe ;) En þetta kvöld var rosa gaman :D

 

Fimmtudagurinn byrjaði nú ekki skemmtilega en í fyrsta lagi hringdi vekjaraklukkan mín ekki þannig að við misstum af fyrsta tíma :S:S:S:S:S En við komumst þó í tæka tíð fyrir annann tíma nema það að þegar ég kom að stofunni minni sá ég engan þar inni og engar bækur...ég náttla fór aftur niður og sá þá Tarka koma inn....og síðan Maggie...við skildum ekkert og fórum þá í hina bygginguna og leituðum, en enginn var þar, síðan eftir 30 mínútna leit var okkur sagt að fara í stofu C10...að allir væru þar....og það var rétt....en þá vorum við orðin svo mörg í bekknum að við fórum aftur í upprunalegu stofuna okkar...og þegar ég labbaði inn í stofuna stóð á töflunni: Estamos en C10 :S:S:S:S váááááá...var pirrandi að sjá þetta....hefði ég bara labbað inn í stofuna hefði ég séð þetta og engin leit hefði þurft að vera...hehehehehe...en þetta var bara fyndið ;) Síðan eftir skóla var bara aðeins farið á netið og ég talaði aðeins við Rob, hehe :D síðan var bara farið heim og fengið sér að borða ;) Síðan ákváðum við að hafa vídjó kvöld ;) Tarka, Adam, John og Hörður komu með myndir en Anton kom ekki því hann var á deiti...hehe ;) Rob kom síðan;) En John, Hörður og Adam yfirgáfu okkur þannig að ég, Rob, Gréta, Jack og Tarka horfðum á myndina Closer ;) Hún var soldið ruglandi en samt góð ;) Síðan horfðum ég, Gréta, Tarka og Rob á myndina Feast of love....hehehe...ég veit fáránlegur titill á mynd...hehe...en myndin var rosa góð ;) Pínu sorgleg en rosa góð ;) Þegar myndin kláraðist komu Martin og John og síðan Elise ;) Þannig að við horfðum á helminginn af Mulan...hehe...og svo smá af öskubusku...hehe...af því að Martin langaði svo að horfa á Disney...hehehehe ;) Síðan um tvö leytið fóru allir heim nema Elise og Rob ;) hehe....af því að Rob nennti ekki að hreyfa sig...ætlaði bara að sofa í sófanum okkar...hehehe....en við náðum að koma honum á lappir á endanum ;) Um 2:30 fórum ég og Gréta að lúlla...hehe ;)

 

Á föstudaginn fórum ég og Gréta galvaskar í skúlen ;) Eftir skóla var síðan aðeins farið á netið og hvatt Hörð og Anton því þeir voru að yfirgefa okkur til Malaga ;( síðan var bara farið heim, lagt sig smá og síðan fengum við okkur að borða ;) Síðan var gert sig til fyrir kvöldið :D Um tólf leytið fórum ég og Gréta upp á Gerona vistina með Jack, Ly og Cecile ;) Þar spjölluðum við og drukkum með öllum krökkunum en síðan um tvö leytið skelltum við okkur á Catedral :D Þar var rooooosalega gaman :D En hvað er málið með svarta gaura að girnast okkur...hehehehe...þeir eltu okkur út um allt...létu okkur gjörsamlega ekki í friði!!!!!!! Sérstaklega þessi litli gaur sem var rosalega skotinn í Grétu..hehehe...en maður hlær bara að þessu..hehe ;) Við komum heim eitthvað um sex leytið þetta kvöld og síðan var bara farið að lúlla ;) Þeir sem vilja vita meira slúður af þessu kvöldi hringið í spænska símann por favor!...hehe ;)

 

Laugardagurinn var frekar rólegur bara....En við vöknuðum eitthvað um hálf tvö leytið, fengum okkur að borða og fórum síðan í garð sem heitir Park Maria Luisa með Jack, John, Tarka og Cecile ;) Þegar við komum þangað voru Bobbie, Kascha, Ly, Yet og tvær vinkonur þeirra þarna nú þegar og síðan kom Maggie til okkar ;) Við sátum öll saman, spiluðum á gítar og spjölluðum í sólinni....það var svoooo nice og það verður sko pottþétt gert þetta aftur!!! :D Um kvöldið fórum ég, Gréta, Jack, John og Tarka og fengum  okkur að borða á einkerjum bar ;) Rosa góður matur ;) Síðan fórum við aftur upp á vist og ég og Gréta gerðum okkur tilbúnar því planið var að fara á Buda Del Mar að dansa :D En þau plön breyttust því strákarnir vildu bara hanga á vistinni og spjalla og eikkað :S Þannig að við ákváðum að gera það en við hefðum átt að fara á Buda del Mar því kvöldið var ekkert svo skemmtilegt :S:S:S En þannig var það bara...hehe...getur ekki alltaf verið skemmtilegt...hehe ;) En um fjögur leytið fóru allir heim og ég og Gréta byrjuðum að horfa á Pocahontas :D Það entist samt ekki lengi því við vorum svo þreyttar...hehe ;)

 

Á sunnudaginn vaknaði Gréta eikkað um níu leytið (skil það ekki ennþá og ekki hún heldur...hehehe) og horfði á Pocahontas og Brother Bear á meðan ég svaf og svaf...hehe...ég vaknaði ekki fyrr en um tvö leytið...sem ætti nú ekki að koma neinum á óvart því ég er svo mikil svefnpurka!!!...hehehehe ;) Síðan eldaði Gréta rosalega góðan kjúkling...mmmmm...var svooo góður :D:D:D Hún er snilldar kokkur hún Gréta mín!!! :D:D:D Á meðan við borðuðum horfðum kláruðum við fyrstu seríu af Ghost Whisperer :D vááá...þetta eru svo góðir þættir...verð að næla mér í aðra seríu..hehe ;) En eftir það fórum við bara að laga til í herberginu okkar því það var svo mikið drasl orðið í því...hehe ;) Síðan bara lærðum við og hlustuðum á tónlist ;) Síðan horfði ég á myndina Heat með Jack, Ly, Yet og Cecile ;) Myndin var svo rosalega löng, 2 tímar og 40 mín, þannig að allir fóru að týnast í burtu hver á eftir öðrum...hehe...þangað til að ég og Jack vorum ein eftir..hehe ;) En við kláruðum myndina og svo var bara farið að lúlla ;)

 Það eru komnar nokkur albúm með djamm myndum á síðuna: http://picasaweb.goggle.com/AddaandGreta2 ;) Endilega kíkið ;)

En ég ætla ekki að masa meira í bili ;)

Hasta la vista;*

Elska ykkur öll ;*

-Aðalbjörg ;*;*

Un semana muy fuerte!!!!! ;)Aðalbjörg Halldórsdóttir

Jámm og jæja...en eitt bloggið fer á hina víðfrægu síðu: adalbjorg20.bloggar.is...hehe ;);)

 

En mánudagurinn var nú bara frekar rólegur ;) Það kom einn nýr í bekkinn minn...strákur frá Bandaríkjunum sem heitir Steven....ok...kannski ekki strákur...maður..hehe...hann er fínn og mjög góður í spænsku. Eftir skóla var svo bara skellt sér aðeins á netið, bloggað aðeins og sett inn myndir og síðan var bara skellt sér heim ;) Þó var stoppað aðeins í Corté Inglés til að tékka á DVD myndum  ;) Ég keypti mér seríuna Ghost Whisperer og eina teiknimynd ;) hehe...of course ;) og það fyndasta var samt að þegar við vorum að skoða myndir komu tvö gömul hjón frá Bandaríkjunum og vildu fá að taka mynd af mér...hehehe....bara af því ég var í bol sem stóð á: Porque no te callas?....sem þýðir af hverju þegiru ekki?...hehe....þeim fannst bolurinn eitthvað svo fyndinn að þau bara urðu að fá mynd af mér...síðan spjölluðu þau aðeins við mig...hehe...þau voru aðeins of mikil krútt..hehe...þannig að ef ég fer til Bandaríkjana hef ég nafnspjaldið þeirra...hehehe ;) En síðan fórum ég og Gréta heim og tókum okkur smá siestu og fengum okkur síðan að borða, rosa gott pasta, sem ég eldaði...hehe ;) Svo kom John og við fórum að læra á meðan Gréta horfði á Friends...hehe ;) Síðan var bara farið að lúlla ;)

 

Ætli maður geti ekki sagt að þriðjudagurinn hafi verið nokkuð rólegur líka...hehe ;) En eftir skóla var bara aðeins skellt sér á netið og síðan skelltum ég og Gréta okkur í ferð með skólanum til Alcazar...sem er höll held ég ;) Það var rosa flott og maður tók soldið af myndum sem ég set bráðum á síðuna ásamt öllum djamm myndunum ;) Á leiðinni heim sáum við hellingur af grískum fótboltaaðdáendum út um allt...syngjandi og hrópandi...hehe...það var rosa fyndið að sjá þetta...löggan auðvitað út um allt, en það var leikur með Sevilla á móti Grikkjum...rosa spennandi og ég held að Sevilla hafi unnið...samt ekki alveg sure á því..hehe ;) En síðan var bara farið heim og Gréta eldaði rosa gott hakk, egg og kartöflur...mmmmm...muy bien ;) hehe...síðan birtust allt í einu Tarka og Adam, sem flutti til fjölskyldunnar hans Tarka, og við spjölluðum í svolítinn tíma...fun stuff ;) Síðan fóru þeir heim og ég og Gréta horfðum á Mulan :D:D:D Alltaf tilbúin fyrir disney myndir skal ég segja ykkur ;) hehe ;) Síðan var bara lúllað ;)

 

Miðvikudagurinn var nettur :D:D En eftir skóla var bara skellt sér enn og aftur á netið, tékkað á emailinu sínu og svoleiðis og svo var bara haldið heimleiðis til hennar Grétu minnar, sem kom ekki í skólan út af hausverki litla dúllan :S:S En hún var sem betur fer í lagi þegar ég kom heim :D enginn hausverkur :D Við fengum okkur smá að borða, eða hún Gréta litla eldaði fyrir mig..híhíhí...og síðan var horft á Ghost Whisperer:D:D Rooosa góð sería..fyrir þá sem ekki þekkja hana ættu að næla sér í eintak ;) hehe ;)

Um kvöldið var síðan gert sig klárann fyrir djammið en það var litapartý á klúbbnum Antique...sem er svooo geggjaður klúbbur að það verður skomm pottþétt oft farið á hann aftur ;) En um ellefu leytið fórum ég og Gréta á vistina til hennar Elise í smá fyrirpartý :D:D Síðan var skellt sér á Antique...við vorum allar í gegt litríkum fötum en þegar við komum loksins á klúbbinn sáum við eiginlega engann í lituðum fötum...hehehe...það var soldið fyndið en fyrir vikið vorum við bara flottastar, ekki satt????...híhíhíhí ;);) EN það var alveg æðislegt á þessum klúbbi....tónlistin var geggjuð!!!!!! Og kannski var smá dansað við ógó sætan strák...hmmmmm....kannski einn í vinahópnum.....hmmm....kannski bara...híhí...þarf ekkert að tala meira um það ;) Pottþétt farið aftur þangað skal ég segja ykkur ;)  En um hálf fimm leytið var komið sér heim af því það var náttla skóli morguninn eftir ;)

 

En fimmtudagsmorgun um hálf níu leytið, vöknuðum ég og Gréta galsvaskar í skólann:D:D rosa stoltar af okkur og einnig kennararnir, sem vita að miðvikudagar eru dagarnir sem allir fara út á djammið:D:D hehe...ekki allir sem gætu þetta ;) Skólinn gekk bara mjög vel, þó svo að við vorum svolítið þreyttar en stoltir íslendingar láta það nú ekki á sig fá ;) Eftir skóla var síðan aðeins kíkt á netið og síðan bara skellt sér heim ;) Við fengum okkur aðeins að borða og horfðum á Ghost Whisperer og gerðum okkur síðan tilbúnar fyrir afmælið hennar Bell, sem varð 19 ára ;) En afmælið byrjaði eitthvað um átta leytið ;) Fyrst var aðeins fengið sér snakk og brauð (snack) á vistinni ;) Allir hollensku krakkarnir voru og síðan ég, Gréta og Jack....hehehe...við vorum samtals 21 manns og þetta voru allt hollenskir krakkar nema við þrjú...hehehe...aðeins of fyndið ;) En um hálf tíu fórum við öll á æðislegan veitingastað og fengum okkur að borða ;) Ég og Gréta fengum okkur pizzu og æðislega gott salat með Fleur og Julie....rooosa gott...sérstaklega salatið :D:D Í endann fengum við öll frí skot af því það var svo gaman hjá okkur og út af því að Bell átti afmæli :D:D Síðan fórum við öll á klúbbinn Catedral :D:D Það var rooosa stuð en ég og Gréta entumst aðeins til þrjú af því við vorum svo þreyttar eftir miðvikudagskvöldið...hehe...þannig að við skelltum okkur heim að lúlla því nú auðvitað var skóli daginn eftir ;) En þetta kvöld var æðislegt :D:D:D

 

Við skelltum okkur enn og aftur galsvaskar í skólann á föstudagsmorguninn...enn og aftur rosa stoltar af okkur sem og kennararnir líka...hehe ;);) Eftir skóla var síðan skellt sér aðeins á netið en svo var bara skellt sér heim ;) Við fengum okkur aðeins að borða og horfðum á Ghost Whisperer en síðan var tekið sér smá siestu....þó svo að hún entist ekki lengi því við þurftum að gera okkur til fyrir afmælið hennar Maggie, sem varð 19 ára ;) En um tíu leytið fórum ég, Gréta, Hörður, John, Tarka, Adam, Elise, Erik, Erin og svo auðvitað Maggie öll saman á veitingastað og héldum upp á afmælið hennar ;) Ég og Gréta gáfum henni peysu og létum fólkið á veitingahúsinu gefa Maggie kökusneið...híhí...erum við ekki bestar?? Hehe ;) En síðan var haldið á bar rölt...hehe...og OMG!!!....auðvitað náði hún Aðalbjörg að detta beint á rassinn!!!!! Vááááá var það vandræðalegt!!!! Götuhreinsararnir voru nýbúnir að bleyta alla götuna og ég auðvitað labbalði galvösk á götunni í mínum sleypu skóm og datt kylliflöt á rassinn fyrir framan tvo gaura!!!! Hahahahahahahahahahahahahaha!!!!! Váááá...svo hló ég svo mikið að ég gat ekki staðið upp og gaurarnir vissu ekkert hvað þeir ættu að gera, hvort þeir ættu að hjálpa mér upp og ég hló bara...hehehe...æji váá...svo varð ég rauð og blá af því að allir í hópnum náttla sáu þetta og hlógu af mér...váááá...þettta var eitthvað svo týpisk ég!!!!! Hehehehe....of course náði ég að detta...hehehe ;) En jámm....við fórum síðan á barinn Big Ben...hann var fínn, en það var bara svo rosa mikið af fólki og rosalega heitt að ég byrjaði að fá soldið í hausinn:S:S ég og Gréta vorum líka svo rosalega þreyttar eftir miðvikudags og fimmtudags kvöld að við ákvaðum bara að fara heim að hvíla okkur því við höfðum enga orku í að fara að dansa!! Hehe ;) Þannig að við fórum heim um hálf þrjú leytið og þegar við komum heim voru John og Hörður ennþá að horfa á DVD á vistinni okkar þannig að við háttuðum okkur og settumst svo hjá þeim og horfðum á Hell Boy....hún er ágæt...en ekki fyrir þá sem þola ekki að horfa á myndir með skrítnum verum...hehe...Rakel, ekki fyrir þig...hehehehe ;) síðan var bara farið að lúlla ;)

 

Við vöknuðum um tvö-hálf þrjú á laugardeginum ;) Mjög nice að geta sofið út loksins ;) En við byrjuðum að horfa á Friends :D Síðan komu John, Tarka og Hörður og horfðu aðeins með okkur;) Síðan kom Elise til okkur og við horfðum öll á myndina Spanglish :D hún er svooo góð...mæli skomm með því að allir horfi á hana...mjög fyndin og líka sorgleg stundum....una película muy buena, svo ég spreyti mig aðeins á spænskunni...hehe ;) Eftir myndina voru ég, Gréta og Elise rosalega svangar þannig að við skelltum okkur á bar til að fá okkur smá í gogginn....og ég get sagt ykkur það að Aðalbjörg ykkar var í cheese heaven...hehe...ég pantaði mér eikkað osa eikkað með sultu og ég fékk skeið af osti, hellingur af litlum brauðum og svo sultu og þetta var svoooo gott...hef ekki fengið svona gott lengi!!!! Hehe....var sko í osta himnaríki!!...híhí ;) Síðan fórum við aðeins á vistina til Elise, spjölluðum aðeins við beautiful Rob...híhí...en síðan skelltum ég og Gréta okkur aftur á okkar vist til strákanna ;) Við fífluðumst aðeins en horfðum síðan á myndina Ali ;) Það gæti hugsanlega hafa gerst að ég hafi verið að kúra soldið með einum gaurnum í vinahópnum...gaur sem byrjar á T og endar á arka....hmmmm....gæti hugsanlega verið...ætla samt ekkert að vera að segja meira!!....hehehe....en allavega..ég var rooosalega þreytt og við byrjuðum að horfa á myndina svo seint að ég rotaðist gjörsamlega hjá Tarka..hehe...en um fimm leytið ákváðum við að hætta að horfa á Ali því allir voru að rotast úr þreytu og sumir farnir að hrjóta....nefni engin nöfn en það gæti hafa verið strákur sem byrjar á H og endar á örður...hehehe ;) En jámm....un noche muy bueno ;)

 

Ég rankaði við mér um þrjú leytið á sunnudeginum ;) Svo gott að sofa....hehe....Gréta var nú þegar vöknuð...hún vaknaði samt bara klukkutíma á undan mér...hehe ;) Við fórum niður og fengum okkur beikon og egg og horfðum síðan á Ghost Whisperer, like always ;) hehe ;) Tarka mætti síðan á svæðið og horfði aðeins með okkur ;) og það er hugsanlegt að ég hafi hallað mér aðeins að Tarka og kúrt smá...hehehehe...en nóg um það, ekkert meira gerðist...hehe ;) Það var horft soldið lengi á Ghost Whisperer og síðan mætti John með Into the Blue með Paul Walker (aðeins of heitur!!) og Jessicu Alba, þannig að við horfðum á hana öll saman ;) Þetta er svooo góð mynd ;) Síðan fóru strákarnir heim og ég og Gréta bara að lúlla ;)

 

Eins og þið sjáið var þessi vika rosaleg....mikið að gerast!!!

 

En ætla nú ekki að masa meira í bili...vonandi næ ég að setja djamm myndirnar upp bráðlega :D:D en þangað til næst ;)

 

Hasta la vista ;*;*

Elska ykkur ;*

-Aðalbjörg ;*;*;*

 

 

Hola todos ;)Aðalbjörg Halldórsdóttir

Hellúúúú... ;) Hvað er að frétta af Íslandinu ?? ;)
Frá Spáni já er skomm allt gott að frétta :D:D Ég trúi ekki að ég sé búin að vera hérna í 6 vikur...þetta er svo rosalega fljótt að líða :S:S

En jámm...hér kemur mitt vikulega update ;) hehe ;P

Mánudagurinn var ekkert rosalega góður fyrir mig og Grétu :S:S ég vaknaði með svo rosalega mikinn hausverk að það var ekki fræðilegur möguleiki að ég færi í skólann og Gréta var ennþá svo veik greyið að við vorum báðar heima lasnar :S:S:S Ekki góður dagur :S:S En Tarka kíkti aðeins við og hjékk aðeins með okkur :)

Þriðjudagurinn var nú aðeins betri fyrir mig :) Ég vaknaði endurnærð og skellti mér í skúlen :) Gréta greyið var samt enn veik en hún skellti sér samt sem áður í skúlen með mér...sem hún hefði eillega ekki átt að gera en hún var búin að missa svo mikið úr skólanum að ég skildi hana alveg :) Þegar ég kom í skólann sá ég að ég hafði fengið pakka frá mömmu og pabba :D:D:D:D:D Það var æðislegt :D Harðfiskur, íslenskt nammi, tímarit og orðabók....æðislegt....:D:D hehe.... ;) Síðan var skellt sér í tíma :)
Tímarnir voru bara fínir :) við fengum tvo nýja nemendur í bekkinn okkar...ein stelpa frá Svíþjóð og eins strák frá Bandaríkjunum...Katarina og Michael :) Katarina er mjög fín en Michael er soldið skrítinn...æji ég veit ekki...þetta er svona gaur sem nennir engu og ætti ekki einu sinni að reyna að vera í skóla...hann mætir mjög sjaldan og þegar hann mætir loksins gerir hann aldrei neitt í tímum...skrítið:S:S!! Tilhvers er hann að borga fyrir þetta ef hann ætlar ekkert að reyna að læra!! En svona er þetta víst stundum með suma..hehe ;) En nóg um gaurinn sem hatar lífið...hehehehe ;)
Eftir skóla sátum ég og Gréta bara í tölvunni í soldinn tíma og fórum síðan bara heim á vistina og fengum okkur smá að borða :) Við gerðum nú ekki mikið eftir það en við hittum vini hans Jacks sem komu frá Belgíu...og vááá...ertað grínast....guð blessi Jack fyrir að eiga svona heita vini...hehe ;) en allavega ;)

Á miðvikudaginn fór ég í skólann en Gréta greyið var enn veik og fór því ekki í skólann litla dúllan :S Ég hinsvegar skellti mér í skúlen sem var bara mjög fínt :) Eftir skóla ákvað ég að fara ekki heim strax, heldur leyfa Grétu aðeins að sofa veikindin úr sér þannig að ég var þar aðeins lengur að surfast á netinu og seta myndir inn á tölvuna mína og soleiðis ;) Síðan skellti ég mér heim um fjögur leytið að tékka á henni Grétu minni :) Hún var nú aðeins betri en samt ekki nógu góð en ég tók mér smá siestu og svaf til sirka hálf sjö leytið :) Ég fór síðan í sturtu og síðan fengum ég og Gréta okkur smá að borða :) Um níu leytið komu svo Hörður og Anton til okkar og spiluðu á gítar á meðan ég og Gréta vorum að hafa okkur til fyrir djammið :) Það var frí í skólanum á fimmtudaginn þannig að auðvitað skellti maður sér á djammið ;) Síðan kom John og við skelltum okkur öll í partý á hitt residensið en um miðnætti fórum ég og Gréta á barinn Big Ben til að hitta Erin, Maggie og Erik...(sem komst loksins undan klóm kærustunnar og fór með okkur á djammið...hehe) ;) við vorum þar í smástund en síðan skelltum við okkur á klúbbinn Catedral þar sem allir krakkarnir voru :D váááá...það var svo gaman og ég tók svooo mikið af myndum :D:D Það ömurlega var samt að þegar ég var að fara að festa myndavélina á úlnliðinn á mér rakst einhver bjáni í mig og myndavélin datt í gólfið :(:( og núna lokast hún ekki vel og ég þarf alltaf að súmma sjálf og sumar myndir verða svo blurry :(:( That's life I guess :S:S ég ætlaði að fara með myndavélina í viðgerð hér en þá fór ég að hugsa um það að ég er hérna bara í 6 vikur í viðbót og ég get alveg notað myndavélina þó hún sé ekki fullkomin og hún er í ábyrgð á Íslandi þannig að ég ætla bara að laga hana þegar ég kem heim :) En þetta er samt allt svo pirrandi!!!!!!!! Þetta er svo mikið hvað ef.... :S
En jámm...nóg af mínum pirringi...hehe ;) En við dönsuðum eins og bjánar þangað til um hálf sex og fórum síðan heim að sofa :) Þetta var mjög skemmtilegt kvöld ef ég hugsa bara ekki um það sem gerðist við myndavélina..hehe ;)

Fimmtudagurinn var rosa rólegur og þægilegur :) við vöknuðum um tvö leytið og fengum okkur heita súpu og brauð að borða :D rosa gott :D:D:D Erin og Maggie komu síðan og við byrjuðum að horfa saman á Aladdin...þær samt kláruðu ekki með okkur, heldur kom Jack og kláraði með okkur :D Um níu leytið komu svo allt í einu John og Anton...sem var mjög gott því við vorum að fara að horfa á Wolf Creek og þorðum eiginlega ekki að horfa á hana einar...hehe...þannig að þeir horfðu á hana með okkur.....váá..hún er svo ógeðslega...hún er alltof graphic...mér finnst ekkert gaman að sjá þegar það er tekið af puttana og eikkað...það er svo ógeðslegt...en jámm...hehe ;) Síðan fóru strákarnir heim og ég og Gréta fórum að pakka fyrir ferðina til Granada :D Síðan lærðum við og horfðum síðan á Disturbia með Fleur, Julie og Yet :) Góður og þægilegur dagur :)

Á föstudaginn skelltum við okkur í eldhressar í skólann :D Gréta var sem betur fer orðin betri eftir veikindin :) Í einum tímanum fórum við upp á la terraza og höfðum tímann þar...það var svo gott að læra í sólinni..hehe ;) Eftir skóla fórum ég, Gréta, Maggie og Erin upp á rútustöð því við vorum að fara allar fjórar saman í helgarferð til Granada :D:D Við lögðum af stað um hálf þrjú leytið og vorum komnar til Granada um korter í sex :) Við vorum soldið þreyttar eftir rútuferðina en við komum okkur á hostelið okkar :) Við vorum á rosa góðum stað nálægt öllu og hostelið var roosa fínt :) Flott herbergi og rosalega þægilegt rúm :) Eigendurnir voru llíka rosalega indælir :) um kvöldið fórum við út og fengum okkur að borða á svona arabískum stað :) rosa góður matur :) Síðan skelltum við okkur á nokkra bari :) Við kynntumst síðan mjög skemmtilegum barþjóni sem kom út með okkur eftir vaktina sína :) Hann var með sambönd allstaðar þannig að við gátum labbað inn eins og ekkert væri inn á alla klúbbana og fengið fría drykki..hehe...ekki slæmt skal ég segja ykkur ;) híhí....en við fórum aftur upp á hostelið eitthvað um fimm leytið eftir æðislegt djamm ;)

Á laugardaginn vöknuðum við snemma og svolítið þunnar en við skelltum okkur að kaupa miða til að skoða Alhambra :) VIð biðum í röð í TVO TÍMA!!!!! hehehe...það var pínu þreytandi en það var alveg þess virði þegar við fengum loksins að sjá Alhambra...sem er svona höll eða virki :) Váááá...svo fallegt :) og þið fáið skomm að sjá myndir :D hehe...tók hellingur af myndum af blómum fyrir þig mamma mín..hehe ;) Eftir Alhambra löbbuðum við aðeins um og fengum okkur að borða :) Við hvíldum okkur síðan aðeins á hostelinu og fórum í sturtu og soleiðis :) Síðan löbbuðum við aðeins um  Granada og fundum síðan þennan krúttlega ítalskan veitingastað Þar sem við sátumst og fengum okkur að borða :) Ég fékk mér roosalega góðann pastarétt og síðan eftirrétt sem var ekkert svo góður..hehehe ;) Síðan fórum við bara aftur upp á hostelið og höfðum rólegt kvöld, spjölluðum aðeins og fórum svo bara að sofa :)

Á sunnudaginn vöknuðum við allar um níu leytið, pökkuðum niður og fórum svo og fengum okkur morgunmat :) Við fórum síðan og keyptum okkur minjagripi og síðan skelltum við okkur á rútustöðina :) Við vorum síðan komnar aftur til Sevilla um fjögur leytið:) Við vorum rosa þreyttar þannig að það var nú ekki mikið gert restina af sunnudeginum en Gréta eldaði kjötbollur og síðan kom Elise og við horfðum allar saman á Little mermaid :D:D Síðan lærðum við aðeins og fórum bara síðan að sofa :) Mjög góður sunnudagur ;)

En ég er loksins komin með myndasíðu :D:D:D:D hehe....
linkurinn er: http://picasaweb.google.com/AddaandGreta
Ég set fleiri myndir bráðum :D en þetta er byrjunin..hehe ;) Djammið kemur seinna ;)

Ég elska ykkur öll svooo mikið og sakna ykkar svooo ;*;;*
Sjáumst eftir 6 vikur ;*;*
-Aðalbjörg ;*

Estaba enferma!!!!!!!Aðalbjörg Halldórsdóttir

Hola todos :D:D

 

Jájá...önnur vika liðin af þessari dvöl minni hérna í Sevilla...hehe...good stuff ;) Þetta líður svo rosalega hratt hérna að ég verð komin heim til Íslands áður en ég veit af...hehe ;)

 

Það var skítaveður alla vikuna....mánudag til föstudags komu stuttir skúrir með millibilum en svo á laugardaginn kom úrhelli....það var eins og það væri verið að hella úr fötu allan daginn næstum því..svakalegt...mér fannst ég bara vera komin aftur til Íslands...hehehe...en jámm...það rignir víst á “Spáni já” líka ;););) Sunnudagurinn var nú samt fallegur...sól og blíða :D:D

 

Á mánudaginn var geggjað fjör en eftir skóla fórum ég og Gréta og fengum sprautu...loksins!!!!!!! hehe...okkur var mikið létt þegar við fengum hana loksins, mig langaði helst að knúsa kallinn í apótekinu..hehe  ;) en eftir það var partý á vistinni út af afmæli Harðar ;) Jámm, hann Hörður varð 22 ára á mánudaginn og var haldin mikil veisla í tilefni þess :D Allir mættu....allur vinahópurinn okkar og svo náttúrulega allir vinir okkar á vistinni...Hollensku stelpurnar, Jack og vinur hans frá Belgíu :D:D Það var rosalega gaman og allir sungu auðvitað fyrir Hörð afmælissönginn á sínu tungumáli...þannig að hann fékk afmæliskveðju á ensku, íslensku, hollensku, frönsku og Indónesísku...hehe...það var mjög fyndið ;) Við stelpurnar elduðum allar saman pasta Bolognesa....vááá...það var geggjað...svo var auðvitað gert salat með og auðvitað fékk Hörður gjöf frá öllum...má ekki gleyma því..hehe;) Eftir matinn chilluðum við á vistinni, spiluðum á gítar og töluðum saman....þetta var rosalega skemmtilegt kvöld en það mikilvægasta er að Herði fannst rosalega gaman ;D;D

 

Þriðjudagurinn var rólegur....ég og Gréta vorum báðar veikar, þannig að það var nú ekki mikið gert :S:S John og Young Sun komu við um kvöldið og við horfðum Death Proof....vááááá....það er sko góð mynd og ég segi sko öllum að fara á vídjóleiguna og ná sér í hana....hún er soldið ógeðsleg..hehe...Quinten Tarantino leikstýrði henni náttla...hehe...en það er skomm þess virði að horfa á hana ;););) baaaarrraaaa góð!!!!! ;)

 

Miðvikudagurinn var líka rólegur...við fórum ekkert út að djamma:S:S....ég og Gréta vorum enn veikar :S:S:S með hósta og hausverk...not good :S:S:S En þetta var samt mjög fínt kvöld :D John og Young Sun komu og við horfðum á þættina Entourage.....rosa góðir þættir....einhverjir kannast kannski við þessa þætti því þeir voru sýndir á Íslandi :D

Eftir það fórum ég og Gréta bara upp í rúm að sleepa ;)


Fimmtudagurinn var líka rólegur....ömurlegt að vera svona veikur :S:S:S:S:S but that’s life...what ya gonna do about it :S:S:S hehe....en við sátumst upp í sófa og horfðum á teiknimyndir því ég var nýbúin að downloada Disney myndum :D:D Við horfðum á Tarzan og Lion King....og svo komu hollensku stelpurnar Julie og Bell til okkar þannig að við horfðum líka á Aladdin :D:D:D Þetta var rosa rólegt og nice kvöld :D  

 

Föstudagurinn var geggjaður :D:D En Gréta greyið kom ekki í skólann af því hún var svo rosa veik litla dúllan ;( Mér var batnað þannig að ég fór því bara í skólann ein :) Eftir skóla skellti ég mér heim og talaði við hana Grétu mína...hún var enn mjög veik dúllan þannig að ég gerði handa henni te og sagði henni að fara að sofa..hehe...ég er svo mikil mamma :D:D:D Ég ákvað að gefa henni frið þannig að ég fór inn í eldhús til Bell og við horfðum saman á Cinderella og borðuðum smákökur...hehe...geggjað nice ;) hehe....síðan komu Julie, Jack og vinur hans Alfredo og við horfðum öll á Lion King...hehe...jámm...við erum teiknimyndafrík...hehe...ég elska teiknimyndir..gæti horft á þær endalaust án þess að verða leið..hehe ;) En um kvöldið fór ég og hitti Hörð, Erin, Maggie, Tarka og Anton á Plaza Nueva og fór með þeim að borða :D Gréta greyið var svo veik að hún kom ekki með okkur ;(;(;( Mér leið ekkert smá illa að fara frá henni en það besta fyrir hana var að fá að vera í friði og sofa til að ná þessu úr sér ;) Síðan skelltum við okkur á klúbbinn Catedral og dönsuðum af okkur rassgatið :D:D:D hehe....það var geggjað stuð :D:D ég viðurkenni að ég var búin að drekka soldið mikið en það var rooooossssaaaa stuð..híhí ;);) Ég kynntist gorgeous gaur frá Englandi sem heitir Rob...nýr nemandi í CLIC...vá var hann heitur og ekkert smá nice..hehe...það verður sko pottþétt dansað og sona við hann á næsta djammi..hehe...en eitthvað um þrjú leytið fór allt að vera soldið weird..hehe...ég, Tarka, Maggie, Erin, Jack, Pierre (vinur Jacks), Bell, Julie, Yet (þrjár af hollensku stelpunum á vistinni okkar) og Elise (amerísk vinkona okkar), vorum  öll ákveðin í að fara á annann klúbb af því að tónlistin á Catedral var orðin soldið boring:S:S hehe...við stóðum fyrir utan í um klukkutíma að ákveða hvert við ættum að fara og síðan einhvernveginn þegar við fórum af stað, náðu allir að splittast þannig að ég, Tarka og Elise vorum ein eftir...hehe...messed up!!!!! Hehe...þannig að við ákváðum að leggja af stað heimleiðis...við kvöddum Tarka og síðan fórum ég og Elise upp á vistina hennar og horfðum á 40 Year old virgin...hehe...snilldar mynd!!! Síðan eitthvað um sex leytið ákvað ég nú að fara að drífa mig á mína eigin vist..hehe...sem betur fer var mín vist 10 mínútum frá hennar vist þannig að maður var nú ekki lengi heim;);) Það var rosalega gott að koma heim til hennar Grétu minnar....ég saknaði hennar ekkert smá....djammið hérna er ekki eins án hennar ;(;(;( Þegar maður hugsar til baka var kvöldið bara helvíti skemmtilegt þó maður hafi nú týnt öll á endanum..hehehe ;););)

 

Ég vaknaði um eitt leytið á laugardeginum....pínu þunn verð ég að viðurkenna en ég var í lagi ;) Ég fór fram og sá þá Jack, Pierre, Grétu og John vera að horfa á American Gangster ;) Ég fór galvösk niðrí eldhús og hitaði mér netta súpu....rosa góð..hehe...þó manni hafi nú langað rooosalega mikið í pizzu í þynnkunni..hehe...en ég fór síðan og horfði með Grétu á myndina því strákarnir höfðu farið út að fá sér að borða ;) Ég fór á þessa mynd í bíó með Guðný á Íslandi en við löbbuðum út í hléinu og horfðum aldrei á endann, okkur fannst hún svo ömurleg...hehehe....en Guðný...ég verð bara að viðurkenna það að endirinn var bara helvíti góður...hehehe....skelltu þér á leiguna og kláraðu hana...hehehe ;);) Síðan fór Gréta að leggja sig því hún var enn veik greyið ;(;(;( Strákarnir komu aftur og John fór að horfa á American Gangster en Jack og Pierre buðu mér að horfa með sér á The Hitcher....sem er by the way mjöööög góð mynd....en hún er mjööögg ógeðsleg...samt sem áður mæli ég með að þið kíkið á hana...hehe ;);) Strákarnir fóru síðan allir á bar til að horfa á fótboltaleik....en ég og Gréta fengum tölvuna hans Jacks og horfðum á Lost....fyrsta þátt í 4 seríu....mergjað stuff...hehe...svo langt síðan ég hef séð Lost og vá hvað það er mikið búið að gerast ;) Ég fór síðan í rigningunni með flottu regnhlífina mína í DIA, sem er súpermarkaður 5 mín frá okkar vistinni okkar, og keypti hellingur af snakki fyrir kvöldið ;) Gréta eldaði síðan ógó góðan kjúkling....vááá...rosalega gott hjá henni...hún er kokkurinn á heimilinu...hehe ;) John borðaði með okkur ;) Síðan komu Anton, Hörður og Tarka og við horfðum öll saman á myndirnar Tristan and Isolde og The Heartbreak Kid til u.þ.b. þrjú leytið, svo var bara farið að lúlla ;);) Þetta var rosa kósý kvöld ;)

 

Ég vaknaði um þrjú leytið...hehe...jamm..mjög þægilegt :D:D Ég fór í eldhúsið og gerði geggjað góða súpu og horfði síðan á Fearless (einkern kínversk bardaga mynd) með Tarka og John ;) Það var fínt en myndin var hundleiðinleg..hehe ;) Gréta svaf því hún var enn svoo veik greyið ;(;( Alveg ömurlegt fyrir hana að þurfa að vera svona veik :S:S:S Síðan horfðum ég, Gréta og Tarka á Aladdin....híhí...teiknimyndafríkur...híhí ;) Það var svaka stuð :D:D Bell og vinkonur hennar komu síðan með hollenska mynd sem hét Alles ist lifde..sem þýðir all is love..hehe....það var mjög athyglisvert að horfa á mynd á hollensku..hehe ;) Myndin var rosa góð...minnti rosalega á Love Actually....af því hún var um sex mismunandi pör ;) Eftir myndina fóru strákarnir út af fá sér að borða en ég eldaði egg og beikon handa mér og Grétu ;) Síðan komu strákarnir aftur og við horfðum á I now pronounce you Chuck and Larry...híhí...ég fæ ekki nóg af þessari mynd...algjör snilld ;) Síðan var bara farið að lúlla ;)

 

En jámm...það er með sönnu hægt að segja að þessi vika og helgi var bara nokkuð róleg...uppfull  af bíómyndum..hehe ;) Vonandi verður meira að gerast næstu helgi ;)

 

En allavega...hasta la vista...sem þýðir: þangað til við sjáumst næst...hehe ;)

 

Adios ;*

-Aðalbjörg ;*

Un fin de semana muy tranquilo!!! ;)Aðalbjörg Halldórsdóttir

Hola todos ;) Ég veit að þetta blogg kemur seint en betra er seint en aldrei ekki satt ?? ;);) hehe ;)

En jámm....seinasta vika var nett, en jámm....mánudagurinn og þriðjudagurinn var rólegt hjá mér og Grétu.....sannkallaðir letidagar...hehe....maður þarf nú að hafa slatta af þeim ekki satt ? ..hehe ;) En jámm....það var bara sofið, borðað, hort á vídjó og kósý bara ;) Það komu líka tveir nýjir nemendur í bekkinn hjá mér, John, Tarka og Maggie....þeir heita Erik og Young Sun....frá Svíþjóð og Kóreu....þannig að nú erum við orðin 8 í bekknum að meðtöldum Anneli og Emily ;) Þeir eru rosa nice strákar ;) Við kynntumst líka öðrum íslenskum strák...hann heitir Anton og er officially kominn í vinahópinn ásamt Young Sun stundum en Erik greyið getur ekki verið með okkur því höldum að hann sé í ól kærustunnar sinnar....því í hvert sinn sem við stelpurnar erum að tala við hann kemur hún og kyssir hann á kinnina og tekur um hendina á honum og horfir á okkur með illum augum...hehe...svona eins og hún sé að merkja sér sitt svæði...hehe....þannig að við látum okkur alltaf hverfa..hehe...en jámm..svona er þetta ;) ;)

Miðvikudagurinn var baaaarrrraaaa snilld!!!!!....hehe....en jámm....auðvitað skelltum við okkur á djammið....þýðir ekkert annað..hehe ;) En jámm...fyrst var nú partý á vistinni...rosa stuð...kynntumst hellings af nýju fólki og kynntumst krökkunum á vistinni betur og nú erum við öll orðin skrambi góðir vinir ;) hehe....en jámm...um tólf leytið var skellt sér á BOSS.....sem er by the way, eins og ég er búin að segja oft, óoooogó góður klúbbur ;) En jámm við fórum þangað af
því það var Valentínusar partý þar....mín var nú komin soldið mikið í glas þetta kvöld en ég ætla nú ekki að vera segja mikið..heldur bara það að það var ógeðslega gaman og þeir sem vilja heyra eitthvað meira slúður verða bara að hringja í mig eða spjalla við mig á msn!!!...hehehehe ;);)

Fimmmtudagurinn var rooosa erfiður...hehe....maður náttla kom ekkert rosalega snemma heim þennan morguninn af djamminu þannig að maður var rosa þreyttur...hehe...en maður kom sér nú í skólann en eftir skóla var bara drifið sig heim að fá sér þynnkumat leggja sig rækilega...hehe...því maður var svo andlega og líkamlega þreyttur eftir gærkveldið...hehe.....en jámm...þennan dag var bara horft á video og haft nettan þynnkudag ;) krakkarnir skelltu sér svo á vistina og við chilluðum aðeins og ætluðum svo að skella okkur í partý á hinni vistinni...en jámm...það var ekkert rosalega ráð'legt....við mættum þangað eitthvað um hálf tólf...en við vorum öll svo andlega og líkamlega þreytt og plús það að partýið var ekkert rooosalega happening..hehe...en jámm...það var bara farið að lúlla um hálf leytið...hehe ;)

Föstudagurinn var gegggjaaður ;) hehe...þegar skólinn var búinn skellti maður sér aðeins á la terraza at school og surfaðist aðeins á netinu og soleiðis en síðan fórum ég og Gréta til læknisins og ætluðum að fá sprautu tvö fyrir lifrarbólgu A og B :) Við komum þangað ok komumst þá að því að því að við þurftum að fara í apótekið og kaupa sprauturnar sjálfar...aðeins of mikið vesen..en jámm...við fórum og þá var það ekki til...sagt okkur að koma á morgun....við fórum þá til læknisins og sögðum henni það og hún sagði okkur þá bara að koma á morgun og hún myndi opna stofuna fyrir okkur og gefa okkur sprautuna :) Við vorum sáttar við það og fórum heim og hvíldum okkur pínu ;) Um kvöldið var svo smá gathering á vistinni og síðan skelltu sér allir á næsturklúbbinn La Catedral....hann var allt í lagi....hann var bara eitthvað svo lítill og þröngur og það var svoooooooo rosalega mikið af fólki að maður gat eiginlega ekkert hreyft sig um...hehe...en þetta var svaka stuð...skemmti mér allavega konunglega með öllum krökkunum ;) Við djömmuðum fram á rauða nótt og skemmtum okkur geggjaðslega..hehe ;)

Laugardagurinn var soldill þynnkudagur líka...hehehe....en við vöknuðum um hálf eitt leytið og fórum í leit að sprautu....vááá...vesen...enn og aftur áttu apótekin ekki sprautuna...þvílíkt vesen....þannig að ég hringdi í lækninn og sagði henni það....og hún sagði að við þyrftum að koma aftur á mánudaginn og fá sprautuna....við vorum sáttar við það....en soldið pirraðar út af þessu veseni..hehe...en jámm...við fórum aftur heim fengum okkur að borða og horfðum svo á mynd og lögðum okkur með Tarka...sem var mættur á vistina..hehe ;) Kvöldið var rólegt líka, en John kom þannig að ég, Gréta og John horfðum á myndina 1408...það var nett...en síðan bættust Hörður, Anton og Tarka við hópinn og við horfðum á Rush Hour 3...það var nett...en jámm...þetta var okkur laugardagskvöld...hehehe ;)

Sunnudagurinn var líka rólegur...hehe ;) En jámm...vidjó dagur já takk...hehe..látið ekki líða yfir ykkur...hehe...en ég, Gréta, Erin og Tarka horðum á In her shoes...Síðan bættust Hörður, Anton og John við hópinn og við chilluðum og chöttuðum saman ;) That was fun en það var nú ekki mikið gert þannig að ekki mikið til að segja frá ;)

Este era mi fin de semana....Un fin de semana muy tranquilo..hehe ;);)

Ég veit að allir eru að bíða eftir myndum og mér þykir það leiðinlegt að ég hef ekki getað sent neinar inn ennþá en hún Erla krútt sagði mér frá 123.is. og ég ætla að prófa það....skil ekki afhverju mér datt það ekki í hug..hehe ;)
Vonandi fer ég að geta sent inn einhverjar myndir fljótlega :)

Þangað til næst.....Adios ;*;*
-Aðalbjörg ;)

"Lost in Spain" ;)Aðalbjörg Halldórsdóttir

Jamm og jæja ;) ....þið segið thað ;)....9 vikur eftir af þessari þriggja mánaða dvöl minni....þetta er farið að líða svo hratt...hehe ;)
En jámm...þessa vika var ekkert síðri en hinar ;)

Mánudagurinn var nú samt ekkert voðalega góður...en ég vaknaði með mígreniskast þannig að það var ekki séns að ég var á leiðinni í skólann :S:S:S Þannig að hún Gréta mín fór án mín og ég tók stóra töflu og aftur upp í rúm :) Mér gekk nú ekki vel að sofna út af hausverknum en þegar ég var alveg að lognast út af þá heyrði ég bank á hurðinni og þá var Patricia, konan sem hreinsar hjá okkur og skiptir á öllum rúmum og soleiðis, þannig að veika ég þurfti að yfirgefa mi cama og bíða þangað til hún kláraði inni hjá okkur...hehe...hún var í svona sirka 45 mín og síðan gat ég hent mér í rúmið aftur og þá náði ég loksins að sofna og ég losnaði við þennan ógeðslega hausverk ;) hehe...en hún Gréta krútt kom heim úr skólanum eitthvað um þrjú leytið og lagði sig en ég fór bara að horfa á Ally McBeal ;) En jámm....þetta mánudagskvöld var ekkert farið út, heldur bara haft það kósý á el residencia ;)

Þriðjudagurinn var nú ekkert viðburðamikill heldur..hehe...heldur sátum við upp á þaki í skólanum í sólinni og hjengum í tölvunni og síðan var bara farið á el residencia og horft á video og sofið!!!!!

Á miðvikudaginn eftir skóla var skellt sér á listasafn...það var rosa flott og allt það en ég endist alrei lengi á svona söfnum þannig að eftir klukkutíma var ég orðin soldið leið enn eftir safnið var farið á Plaza Nueva og chillað þar með krökkunum....spilað á gítar og drukkið ;) síðan var ferðinni heitið á næturklúbbinn Boss......váááá...hvað það var gaman...ekkert smá góður klúbbur og það verður skomm pottþétt farið á hann aftur ;) EN vááá.....það var aðeins of mikið af blökkumönnum þarna sem bara létu okkur ekki í friði...hehehehe....þetta var held ég heilt körfuboltalið sem var þarna...hehehe....ég lennti í þremur sem létu mig ekki í friði...og einn risastór sem var rooosa hrifinn af Grétu...hehehe...en það var nú bara eitthvað til að hlæja af...hehehe ;) En jámm...allir fóru heim eitthvað um þrjú leytið en ég Gréta, stoltir íslendingar, kunnum náttla að djamma og gleymdum okkur í danseríinu...við rönkuðum síðana við okkur um fimm leytið og komum okkur heim...hehehe....en jámm, ég stillti samviskulega klukkuna á 7:30 og fór svo síðan að sofa...en neinei...við vöknuðum klukkan tíu og ég greinilega hafði slökkt á klukkunni í svefni þannig að það var ekki farið í fyrsta tíma á fimmtudaginn....en við fórum nú í annann tíma þannig að það var nú betra en ekkert...hehehe....en svona gerist víst og maður hlær bara að þessu núna ;)

Fimmtudagurinn var rosa erfiður...hehe...maður var svoooo þreyttur...hehe...eftir þetta blessaða djamm daginn áður ;) En samt var ekkert tekið siestu þennan dag...hehe...ég, Gréta, Hörður og Erin skelltum okkur á Burger King og fengum okkur feitan þynnkumat..hehe...og síðan var skellt sér upp í skóla og upp á þak í sólina og surfuðum um netið ;) En klukkan 16:30 fórum ég, Gréta og Erin á Cooking Class og við lærðum að gera Tortilla de Patatas...sem er by the way óóóógó góður mat...en það er bara eggja og kartöflu kaka....vááá...svo gott...hehe...ég skal sko elda það fyrir ykkur þegar ég kem heim ;) híhí ;) Eftir tíma skelltum við okkur síðan á Plaza Nueva og hittum John og Hörð....við sátum þar í sirka tvo tíma og spiluðum á gítar og sungu...eða við hlustum á John syngja....og vááááá...hann er með æðislega rödd...ertað grínast...þegar hann byrjaði að syngja þá þögnuðu allir...hehe...en síðan var skellt sér Intercambio á Corral barnum ;) Það er alltaf jafn asnalegt að fara á Intercambio og hitta kennarana sína...hehe...drekka með þeim og eikka...hehe...en við vorum þar samt bara til um tólf leytið og síðan farið að lúlla :)

Á föstudaginn eftir skóla skelltum við okkur upp á þak eins og vanalega og surfuðumst on the internet ;) en svo fórum við heim og tókum smá siestu og síðan fórum ég, Gréta, Hörður, Erin, Maggie, John og Tarka í bíó og sáum myndina Juno :) Hún er rooosa góð..mjög fyndin...mæli skomm með að allir kíki á hana ;)  Síðan var skelltum ég og Gréta okkur með Tarka, John og Herði á bar en við fórum heim eitthvað um hálf eitt leytið af því við þurftum að vakna snemma á laugardagsmorgun til að fara í ferð til Huelva með skólanum :)

Á laugardaginn fórum við til borgarinnar Huelva með skólanum eins og ég sagði áðan :) Við fórum af stað klukkan 9:15 þannig að við sváfum á leiðinni...eða í einn og hálfan tíma sirka :) Við fórum í dropahelli....vááá...það var geggjað flott....endilega googlið þetta og kíkið á myndir af þessu....því það mátti ekki fara með myndavél þangað, en kíkið....Gruta de las Maravillas í borginni Huelva;) En váá...auðvitað náðum við að týna hópnum....við stelpurnar ákváðum að skreppa á klósettið og þegar við komum út uppgötvuðum við það að hópurinn okkar var farinn...shitt......hehe.....en það komu tveir kallar sem voru í hópnum og kölluðu á okkur...smá pirr í gangi hjá einum þeirra en það lagaðist fljótt og við fundum hópinn á endanum upp á einkerri hæð langt í burtu..hehe....en jámm....það var mikið labbað í þessari ferð...en ég held að við höfum labbað í sirka 6 tíma.....aha...mjög mikið..hehe...enda var maður vel þreyttur eftir þessa ferð :) En við komum aftur heim til Sevilla eitthvað um hálf átta leytið og þá var strax komið sér upp á el residencia, fengið sér að borða og lagt sig í um einn og hálfan tíma ;) En síðan hittum við alla krakkana....eða Hörð, John, Tarka og Maggie og við skelltum okkur á djammið ;) Við reyndum fyrst að komast inn á Buda del Mar...við stelpurnar komumst inn ekkert mál...en strákarnir neibb...hehe....það eru reglur um að þú kemst ekki inn í íþróttafatnaði.....John var í íþróttaskóm þannig  að það náði ekki lengra...en Hörður og Tarka voru sko ekki sáttir þannig að við stóðum fyrir framan Buda del Mar í sirka klukkutíma þangað til þeir náðu sér...hehehehehe....en við enduðum á því að skella okkur á Bestiario....við enduðumst þar til um hálf fimm og síðan var skellt sér heim að lúlla ;) En jámm....fun stuff ;)

Sunnudagurinn var aðeins of þægilegur...en ég og Gréta sváfum til sirka 14 og svo komu Hörður, Erin, Maggie, Tarka, John og Jay (sem er by the way óógggó heitur...hehe) á vistina til okkar um hálf sjö leytið og við horfðum öll samankramin á Disturbia in my computer ;)  Það var rosa fjör en síðan fóru allir nema Tarka...þannig að ég, Gréta og Tarka horfðum saman á Ratatouille ;) Fun stuff...hehe ;)

En jámm....massa vika ;) og næsta verður örugglega ekki síðri ;) hehe ;)

Ég veit að allir eru að bíða eftir myndum en það hefur gengið frekar brösulega að finna réttu síðuna til að posta þetta allt en vonandi fer þetta nú að ganga....ég ætla að reyna betur á morgun ;) vonandi get ég postað einkerjar á morgun og ef ég get það læt ég ykkur strax vita ;) I PROMISE :D:D ;)

Ég elska ykkur öll og sakna ykkar ;*
Þangað til næst;*
-Aðalbjörg ;*

Lítil fraenka komin í heiminn :DAðalbjörg Halldórsdóttir

ÉG ER BÚIN AD EIGNAST LITLA FRAENKU :D:D:D

Jámm....ádan fékk ég sms um thad ad í dag, 7. febrúar, eignudust Halli og Helena litla stelpu :D:D:D váááá...thegar ég sá thetta fékk ég tár í augun...ég er svo ánaegd....mér finnst bara verst ad ég sé ekki á landinu til ad sjá litla krúttid og knúsa alla....sakna allra svo sárt ;(;(

Ég á líka enga innistaedu thannig ad ég gat ekki hringt í bródur minn og óskad honum til hamingju og spurt um hvad hún er stór og soleidis :(;(
Thannig ad ég vil gera thad formlega hér:

Til hamingju med litlu skvísuna elsku Halli og Helena ;*;*;* og audvitad til hamingju Hektor, Halldór, Hadda og Harpa, med litlu systur...hehe...skrítid ad hugsa til thess ad Hektor eigi litla systur...hehe...hann er svo lítill ennthá krúttid ;)

Og ekki má gleyma mommu og pabba...hehe...til hamingju med enn eitt barnabarnid....hehe...thid erud svo rík ;*;*

Og til hammó Davíd, Stebba og Fannar med litlu fraenku ;*;*
og ekki má gleyma Elsu....I love jú so much...hehe :D:D:D

Mér hlakkar til ad koma heim og knúsa alla og kyssa :D:D:D

Halli og Helena...thid losnid skomm ekki vid mig thegar eg kem heim...hehe :D:D

En allavega....ég elska ykkur oll út af lífinu og ég sakna ykkar allra svooo sárt ;*;*;*

Ykkar systir, dóttir, vinkona og besta fraenka í heimi...híhí ;)
-Adalbjorg ;*;*;*;*


Vamos al Karnival ;)Aðalbjörg Halldórsdóttir

Jæja, þá er önnur vikan búin og mikið búið að gerast ;)


Skólinn gengur ágætlega:) Við fengum tvo nýja nemendur í bekkinn okkar, þau eru mjög fín:) en við skiptum um kennara fjórum sinnum þessa vikuna...soldið pirrandi...við lenntum tvisvar á sama forfallakennara sem við köllum alltaf Scary Eyes...hehehe....hann er gulur á litinn með risa augu og alltaf þegar hann biður mann um að útskýra eitthvað eða segja svarið þá starir hann alltaf á mann með þessum stingandi augum og lyftir augabrúninni upp...hehehehehehehe…aðeins of fyndið..hehe;) en við erum loksins komin með fasta kennara sem heita Carmen og Miguel :) þau eru rosa fín og tala nógu hægt þannig að maður skilur þau :) Við erum að læra þátíðir og erum allltaf að æfa talið þannig að maður verður vonandi orðin nokkuð góður í spænskunni eftir 10 vikur ;)


En nóg komið af skólanum :) Eftir skóla á mánudaginn skelltum ég, Gréta, Hörður, Erin og Maggie okkur í svona leiðangur um borgina :) rosa flott :) og í þessum leiðangri kynntumst við Tarka, en hann er einn af nýju nemendunum í bekknum okkar Maggie :) Hann og John, sem er í bekknum með okkur Maggie líka, eru bættir inn í vinahópinn þannig að Hörður er ekki lengur eini strákurinn..hehe ;) En vá, mér hefur aldrei liðið eins fáránlega og þegar ein stelpan frá Þýskalandi held ég labbaði að okkur og spurði hvaðan við værum...við svöruðum auðvitað að við værum frá Íslandi og hún sko gapti og sagði....Í alvöru!!!!! Ég hef aldrei séð neinn frá íslandi áður....vááá....vissi ekkert hvernig þeir litu út...hehehehe....eins og við værum einhver algjör frík...hehehe...mér leið eins og ég væri frá annarri plánetu..hehehe...;);) Eftir leiðangurinn var bara farið heim. Um kvöldið hittum við Hörð, John og Tarka og við fimm skelltum okkur á bar og fengum okkur að borða...rosa gott ;) Síðan skelltum við okkur á Flamenco bar....váá...rosa flott ;) En kellingin var eins og kall...hehe...mjög fyndið...ég hélt að Flamenco dansarar ættu að vera svona rosa spænskar gellur..hehe...en það er víst ekki alltaf þannig..hehe...en hún var rosa góð í Flamenco...hún má eiga það..hehe ;) Síðan var bara farið heim að lúlla :)


Á þriðjudaginn var nú ekki gert mikið...en við Gréta fórum í Corte Inglés og keyptum okkur DVD myndir fyrir kósý kvöldið sem var framundan :) Við fengum okkur síðan að borða á Burger King og skelltum okkur síðan heim og horfðum á Seríuna What I like About You sem ég hafði keypt mér :) Það var rosa fínt að hafa kósý kvöld.


Á miðvikudaginn skelltum við okkur í safnferð :) Við fórum á listasafnið í Sevilla....það var rosa flott...mér var samt farið að leiðast soldið í lokin því ég er nú ekkert rosalega mikið fyrir söfn en maður verður nú að upplifa svona nokkrum sinnum á ævinni..hehe ;) Vikulega er svona Intercambio dæmi, sem ég held að ég hafi útskýrt fyrir ykkur hvernig virkar, og það er rosa fjör :) Við skelltum okkur öll eftir að við vorum búin að fá okkur smá í gogginn:) Þar hittum við svo John og Tarka og eitthvað um eitt leytið fórum við öll og stór hópur af krökkum á klúbbinn Bestiario....það var miðvikudags kvöld þannig að það var ekkert rosalega mikið í gangi þannig að við sátum bara og spjölluðum J Við fórum öll heim eitthvað um þrjú leytið því það var ekkert rosalega mikið í gangi á þessum stað, en þetta var rosa skemmtilegt kvöld :)



Á fimmtudaginn var nú ekki mikið gert en við skelltum okkur í bíó um kvöldið
:) Það er rosa gott að hafa bíó með ensku tali og spænskum texta svona nálægt :) Við skelltum okkur á myndina Criminals of Oxford :) Hún er rosa góð...mjög spennó og ég mæli með að þið kíkið á hana..hehe ;)


Á föstudags kvöldið skelltum við okkur öll saman á barJ Við chilluðum þar í um tvo tíma og fórum síðan annað og fengum okkur eikkað gott í gogginn :) Tapas eru svona smáréttir á spáni og þeir eru rooosa góðir og kosta skít á priki...Einn tapas réttur kostar um 2.50 efrur...stundum minna...ekki neitt ;)

Þaðan skelltum við okkur aftur á Bestiario...þetta kvöld var sko eikkað að gerast...við skelltum okkur á dansgólfið og við dönsuðum fram á rauða nótt...eða til sirka 4 eða eikkað og síðan var bara farið heim að lúlla :) Við entumst ekki lengur því við uppgötvuðum það að þessi staður er meira fyrir eldra fólkið..hehe...því við vorum yngstu á staðnum...hehe...þannig að það verður ekki farið þangað aftur...hehe ;)


Á laugardaginn var svo ákveðið að fara á Karnivalið í Cádiz....það er svakalegt...minnir soldið á þjóhátíð, nema þarna eru allir í búningum...gegt flottum búningum...bara snilld ;) Við náttla höfðum öll keypt okkur búninga fyrir þennan merkilega atburð..hehe..og við vorum aðeins of flott..hehe ;) ég var Tavern Wench, eða svona þjónustustúlka frá Þýskalandi í gamladaga..hehe..og Gréta var svona þýsk mjatlarkona í gamladaga...hehe...Erin var svona kan kan dansari, Maggie var fjallastelpan Heidi, Hörður var Casanova, John var arabi og Tarka var páfinn....hehe...það var aðeins of fyndið því hann var vinsælasti í hópnum...hehe...allir alltaf að blessa og eitthvað...aðeins of fyndið..ég náði meirað segja einu video af því þegar hann var að blessa tvo gaura...það var aðeins of skondið ;) En já við tókum rútu:) Við áttum að far af stað klukkan fimm og ætluðum að fara heim með 5:30 rútunni um nóttina, enn þegar við vorum komin á rútustöðina fengum að við að vita það að þeir hefðu breytt tímunum og að rútan færi ekki fyrr en klukkan sjö og að við myndum ekki komast heim fyrr en með klukkan níu rútunni um morguninn...hehe....þannig að við biðum á rútustöðinni í tvo tíma og drukkum og spjölluðum..hehe ;) En við komum til Cádiz eikkað um hálf níu:) Það var rosa flott að sjá alla í búningunum því þetta var allt svo fyndið..hehe ;) En þið fáið að sjá nóg af myndum af því ;)


Við fórum síðan öll niðrá strönd, drukkum meira og fórum í leikina I Have Never og Truth or Dare og ég held það sé safely hægt að segja að það eru engin leyndarmál innan þessa hóps lengur...hehehehe ;);) þarf ekki að segja meira...hehehe ;) en þetta var fjör ;) Við fórum síðan á lífið og ætluðum á næturklúbb en við við komumst þá að því að það eru engnir klúbbar opnir þegar það er Karnival þannig að við löbbuðum aðeins lengur um borgina og fórum síðan aftur niðrá strönd og chilluðum þar J Það endaði síðan á því að Hörður, Erin, Maggie og John sofnuðu og síðan drapst Tarka...hehehehe...þannig að ég og Gréta vorum einar eftir sem voru vakandi...hehe...við sátum bara aðeins á ströndinni, löbbuðum aðeins um og soleiðis og vorum að drepast úr kulda en síðan um sjö leytið vaknaði Maggie og við þrjár ákváðum að skilja hin eftir og labba á rútustöðina því okkur var svooo kalt að við vorum hættar að geta hreyft okkur...hehe...:) Við komum á rútustöðina um hálf átta leytið og komumst þá að því að við gátum komist fyrr heim því að það var rúta að fara klukkan 7:45 J Við breyttum miðunum okkar í snatri og skelltum okkur heim....við náttla rotuðumst allar á leiðinni heim..hehe :) Við komum síðan loksins til Sevilla um hálf tíu leytið...við vorum dauðþreyttar, skelltum okkur í leigubíl upp á vist og rotuðumst aftur um tíu leytið...vá var það þægilegt :D:D En það var rosalega gaman að upplifa þetta :D:D


Við vöknuðum síðan um hálf sjö leytið á sunnudaginn...hehe...dagurinn búinn þannig að ég ætti kannski að segja um hálf sjö leytið á sunnudagskvöld..hehe ;) En það var letidagur dauðans...hehe ;) Ég fékk hringingu frá mömmu og pabba...vá hvað var gott að heyra í þeim....sakna þeirra rosalega og allra vina minna og fjölskyldu þannig að það er gott að heyra svona fréttir af öllum á Íslandinu :D En jámm, eins og ég sagði þá var þetta letidagurinn góði..hehe...því við fengum okkur og borða og horfðum síðan á What I like About you allt kvöldið og borðuðum ís...hehehe ;)


Ég veit að allir eru að bíða eftir myndum en þegar ég setti myndir inn á síðuna þá komu þær allar svo skrítnar út...maður þurfti að púsla þeim saman og eikkað þannig að ég og Gréta ætlum að stofna myndasíðu saman og þegar hún er ready skelli ég linknum strax hérna á síðuna ;) Ég á líka soldið erfitt með að komast í tölvu þannig að það verður örugglega bara vikulegt blogg í framtíðinni eins og ég hef gert upp á síðkastið ;)


 


Ég elska ykkur öll af öllu hjarta og sakna ykkar sárt ;*

Kossar og knús;*

Þangað til næst...

-Aðalbjörg ;*

Síða 1 af 2